Íslenska karlalandsliðið nú í kringum mánaðarmótin leika heiman og heima gegn Litháen í undankeppni HM 2027.
Um er að ræða annan leikjaglugga keppninnar, en í fyrsta glugganum vann íslenska liðið Ítalíu úti og tapaði svo fyrir Bretlandi heima í Laugardalshöll. Leikið er heima 27. febrúar gegn Litháen heima í Laugardalshöll og þann 2. mars úti gegn sama liði í Klaipeda.
FIBA gefur út kraftröðun fyrir alla glugga keppninnar þar sem leikmannahópum liða keppninnar er raðað eftir styrkleika. Í nýjustu útgáfu þeirra setja þeir Tyrkland í efsta sæti Evrópu, Grikkland er í öðru sætinu og í því þriðja er Þýskaland.
Mótherjar Íslands nú um mánaðarmótin frá Litháen eru nokkuð ofarlega á listanum, í 10. sætinu, en þeir fara upp um þrjú sæti frá síðasta glugga keppninnar í nóvember. Þar er lið Íslands í 20. sæti, en síðast voru þeir í 19. sætinu. Samkvæmt greininni mun Ísland fara niður um eitt sæti vegna þess að Martin Hermannsson verður frá góðu gamni vegna meiðsla.
Enn frekar er sagt ,,Íslenska liðið er hreinlega ekki það sama með hann innanborðs og án hans. Eini annar leikmaðurinn í liðinu sem hefur álíka vægi (VORP*) er líklega Tryggvi Hlinason. Það er mikið áfall ef Martin verður ekki heill heilsu fyrir leikina gegn Litháen”




