Fjöldi leikja fór fram í undankeppni EuroBasket í gærkvöldi og í A
riðli sem Íslendingar leika í, sigruðu Svarfellingar Ísrael á heimavelli
75-69 og í Eistlandi unnu heimamenn Slóvaka 95-74.
Það er fróðlegt fyrir okkur Íslendinga að sjá þessi úrslit nú þegar öll
liðin hafa leikið. Fyrirfram má reikna með að við eigum möguleika á
sigrum gegn Eistum og Slóvökum og úrslit úr leik þeirra gefa okkur enn
meiri vonir um sigur í Slóvakíu á laugardag.
Stigahæstur Eista í leiknum var Janar Talts með 16 stig auk þess sem
hann tók 11 fráköst en fyrir Slóvaka skoraði Jozef Vojtek 13. Eftir
leikin nsagði Anton Gavel leikmaður Slóvaka að hann vonaði að liðið
myndi leika betur á heimavelli.
Í Svartfjallalandi var sveiflukenndur leikur, þó sérstaklega í seinni
hálfleik. Ísrael komst 8 stigum yfir en tapaði svo lokaleikhlutanum með
14 stigum. Þrír leikmenn skoruðu 12 stig fyrir Svartfellinga, þeir Suad
Sehovic, Blagota Sekulic og Taylor Rochestie. Besti maður Ísraela var
Lior Eliyahu með 22 stig, hitti úr 10 af 14 skotum sínum. Lior þessi er
26 ára og var valinn af NBA liðinu Orlando Magic árið 2006 en hefur svo
verið seldur áfram og er nú hjá Minniesota Timberwolves en mun leika í
heimalandinu í vetur með Maccabi Tel Aviv.
Önnur úrslit í gær voru:
B riðill
Lúxemborg – Azerbaijan 78-101
Búlgaría – Svíþjóð 78-73
C riðill
Úkraína – Ungverjaland 77-71
Kýpur – Austurríki 86-89
D riðill
Bosnía og Herzegovina – Lettland 87-84
Rúmenía – Holland 90-84
E riðill
Pólland – Belgía 57-64
Albaína – Sviss 51-76
F riðill
Hvíta-Rússland – Tékkland 65-73
Ítalía – Portúgal 97-45
Næsti leikur er á morgun þegar Finnar taka á móti Albönum og á
laugardag fara svo fram 12 leikir, m.a. heimsækir Ísland Slóvakíu og er
leikið í Levice.
Mynd/ FIBA Europe: Frá viðureign Eista og Slóvaka.