HomeFréttirEiríkur uppi í Seljaskóla til frambúðar

Eiríkur uppi í Seljaskóla til frambúðar

Fyrir leik ÍR og KR í Iceland Express deild karla í kvöld mun Körfuknattleiksdeild ÍR veita Eiríki Sverri Önundarsyni viðurkenningu fyrir framlag sitt til félagsins og íþróttarinnar. Eiríkur hefur spilað 425 leiki fyrir meistaraflokk ÍR í deild og bikarkeppnum og er Eiríkur sem stendur í fimmta sæti yfir leikjahæstu leikmenn í efstu deild karla frá upphafi með 372 leiki spilaða. 
Af þessu tilefni hefur Körfuknattleiksdeild ÍR ákveðið að veita Eirík þann heiður að treyja með hans nafni og keppnisnúmeri verði hengd upp í íþróttahúsi Seljaskóla til frambúðar.
  
Fréttir
- Auglýsing -