HomeÚti í heimiEvrópaEinum leik frá úrslitaeinvígi

Einum leik frá úrslitaeinvígi

Alba Berlín er aðeins einum sigri frá því að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu um þýska meistaratitilinn í körfuknattleik eftir 85:71 sigur gegn Bamberg í kvöld.

Liðið leiðir nú einvígið 2:0 en þriðji leikurinn fer fram á heimavelli Bamberg á fimmtudaginn.

Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson fór á kostum í liði Alba Berlín í leiknum og hélt áfram frábæru gengi sínu í úrslitakeppninni. Hann lék í 21 mínútu og skilaði hlutverki sínu með prýði, en kappinn skoraði 16 stig, gaf fimm stoðsendingar og tók tvö fráköst í mikilvægum sigri sinna manna.

Fréttir
- Auglýsing -