spot_img
HomeFréttirEinstæð móðir á leiðinni í atvinnumennsku

Einstæð móðir á leiðinni í atvinnumennsku

 
Helena Sverrisdóttir verður ekki eina íslenska körfuboltakonan sem spilar í Evrópu í vetur því þær Fanney Lind Guðmundsdóttir og Ragna Margrét Brynjarsdóttir eru einnig á útleið. Fanney hefur samið við franska liðið Union Sportive de La Glacerie sem spilar í NF2-deildinni og Ragna Margrét ætlar að fylgja kærasta sínum, Pavel Ermolinskij, til Sundsvall í Svíþjóð. www.visir.is greinir frá.
„Ég er búin að vera að stefna að þessu í ár. Ég er mjög spennt fyrir þessu en líka smá stressuð. Þetta verður öðruvísi enda í fyrsta skiptið sem ég spila fyrir annað lið en Hamar. Ég var lengi að hugsa þetta því það var svolítið erfitt að fara frá Hamri. Það er bara ekki oft sem maður fær svona tækifæri og ég ákvað bara að slá til,“ sagði hin 22 ára Fanney sem er á leiðinni til Cherbourg í Normandíhéraði í Frakklandi. Fanney ætlar bara að einbeita sér að körfunni úti en hún verður ekki ein úti þar sem fjögurra ára dóttir hennar, Máría Líney Dalmay, verður með í för.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -