HomeBónus deildinBónus deild karlaEinn besti skorari deildarinnar gengur til liðs við Val

Einn besti skorari deildarinnar gengur til liðs við Val

Valur hefur gengið frá samkomulagi við Dwayne Lautier-Ogunleye um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Dwayne þarf vart að kynna fyrir íslenskum körfuboltaunnendum, enda hefur hann spilað hér á landi í nokkur ár og stimplað sig inn sem einn af allra bestu stigaskorurum deildarinnar. Hjá Val ríkir mikil ánægja með komu hans og er búist við því að hann muni styrkja liðið á margvíslegan hátt í baráttunni framundan.

Dwayne kveðst sjálfur spenntur fyrir komunni á Hlíðarenda, nefnir ríka sögu félagsins og stefnir ótrauður á að hjálpa liðinu að færa Íslandsmeistaratitilinn aftur heim.

Fréttir
- Auglýsing -