KR-ingurinn Benóní Andrason er genginn til liðs við DME Academy Wisconsin í Bandaríkjunum.
Benóní, sem er 201 cm framherji, er talinn bestur meðal íslenskra leikmanna í 2009-árganginum.
Þrátt fyrir ungan aldur lék hann upp fyrir sig með U18 landsliði Íslands í sumar þar sem hann var stigahæstur, frákastahæstur og með flesta stolna bolta (12,1 stig, 6,8 fráköst og 2,1 stolnir boltar að meðaltali í leik).
Einnig átti hann frábært mót með U16 landsliðinu á síðasta ári þar sem hann skilaði 17,5 stigum, 11,9 fráköstum, 3,4 stoðsendingum og 3,5 stolnum boltum að meðaltali í leik.




