Út er kominn nýjasti þátturinn af Run and Gun með fyrrum þjálfaranum og fjölmiðlamógulnum Máté Dalmay.
Með Máté í þessum síðasta þætti eru stuðningsmaður Vals Steinar Aronsson og sá grindvíski Manni Vill. Upptökuna er hægt að nálgast hér á Spotify og þá er hægt að horfa á þáttinn á YouTube hér fyrir neðan. Í honum er meðal annars farið yfir tímabilið í Bónus deild karla, en úrslitakeppni deildarinnar hefst á morgun.
Þá gefa þeir einkunnir fyrir tímabilið í Bónus deild karla. Hana má sjá hér fyrir neðan, en lagt er mat á fjóra lykilþætti hjá hverju liði: árangur, þjálfara, íslenska leikmenn og erlenda leikmenn. Lið eins og Grindavík og Ármann fljúga hátt og fá frábæra dóma, en Ármann er til að mynda með fullt hús stiga í þremur flokkum af fjórum. Á hinum endanum sitja Álftanes og Þór Þ. sem fá talsverða falleinkunn á flestum sviðum í þessu mati. Athygli vekur að mörg lið virðast eiga talsvert inni þegar kemur að erlendu leikmönnunum sínum, enda eru einkunnirnar þar víða frekar lágar.
Einkunnir Run & Gun er hægt að sjá hér fyrir neðan og þá er hægt að hlusta á umræðuna í síðustu upptöku hlaðvarpsins hér.





