Úrslitaleikir VÍS bikarkeppninnar verða leiknir í Smáranum á morgun laugardag. Fyrri leikurinn er leikur KR og Stjörnunnar í meistaraflokki karla, en sá seinni er á milli Keflavíkur og Grindavíkur í meistaraflokki kvenna.
Karfan fékk nokkra málsmetandi aðila til þess að spá fyrir um leikina tvo. Fyrstu er fjölmiðlamaðurinn Heiðar Snær Magnússon, en hann spáir Stjörnunni og Grindavík titlinum.
Hérna eru allir leikir VÍS bikarvikunnar
Úrslitaleikur karla – KR gegn Stjörnunni
Hvernig fer leikurinn? 76-103
Hvernig á hann eftir að spilast?
Stjarnan mætir í fyrsta leikhluta og gengur frá leiknum, KR hótar endurkomu í upphafi seinni en gæði Stjörnuliðssins skína í gegn og verður fjórði leikhluti helgaður leikmönnum sem vanalega snerta ekki gólfið. Einhverjir munu tala um þetta sem Giannis Agravanis leikinn.
Úrslitaleikur kvenna – Grindavík gegn Keflavík
Hvernig fer leikurinn? 81-80
Hvernig á hann eftir að spilast?
Hér verður spenna til lokaflauts. Keflavík mun byrja betur og leiða í hálfleik en Grindavík hægt og rólega vinnur sig inn í leikinn þar til að Abby Beeman tekur algjörlega yfir leikinn síðustu mínútuna. Sé jafnvel fyrir mér einhverskonar flautukörfutrylling.




