spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaEinar Árni: Frábært að sjá allan þennan fjölda

Einar Árni: Frábært að sjá allan þennan fjölda

Liðin í efstu deilum landsins eru á fullu þessa dagana að undirbúa sig fyrir komandi átök. Nokkur fjöldi af æfingaleikjum eru í gangi og er spennandi að sjá hvernig liðin koma undan sumri.

Pétursmótið hófst í dag þar sem fjögur sterk lið taka þátt, þ.e. Njarðvík, KR, Grindavík og Keflavík en mótið er haldið til minningar um Pétur Pétursson. Nokkur haustbragur var á liðum en gaman var að sjá hvernig liðin koma undan sumri.

Liðin sem mætast í fyrstu umferð Dominos deildarinnar Keflavík og Njarðvík mættust í fyrsta leik mótsins. Njarðvík var í bílstjóra sætinu í leiknum og hafði 90-73 sigur gegn Keflvíkingum.

Karfan spjallaði við þjálfara Njarðvíkur, Einar Árna Jóhannsson, eftir leik í TM Höllinni.

Fréttir
- Auglýsing -