Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir aftur til leiks nú í vikunni þegar tveir mikilvægir leikir fara fram í undankeppni EuroBasket 2027.
Hópur liðsins var tilkynntur á dögunum, en ein breyting er á landsliðshópnum fyrir leikinn gegn Serbíu. Ásta Júlía Grímsdóttir þurfti að draga sig út úr hópnum vegna ökklameiðsla, en vonir standa til að hún verði klár fyrir heimaleikinn gegn Portúgal þann 17. mars.
Í stað Ástu kemur Kristrún Ríkey Ólafsdóttir, leikmaður KR, inn í hópinn. Kristrún hélt utan í morgun og er væntanleg til móts við liðið í Novi Sad um kvöldmatarleytið. Leikurinn fer fram á morgun kl. 17:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.





