spot_img
HomeFréttirEfnilegustu leikmenn landsins fædd sama dag

Efnilegustu leikmenn landsins fædd sama dag

Algjörlega ótrúleg staðreynd barst ritstjórn Karfan.is á dögunum en bestu ungu leikmenn fyrri hluta Dominos deildanna eru fædd sama dag á sama ári.

 

Þau Emelía Ósk Gunnarsdóttir leikmaður Keflavíkur og Þórir Guðmundur Þorbjarnarson leikmaður KR eru bæði fædd þann 26. maí 1998. Eins og kom fram hér að ofan voru þau bæði valin besti ungi leikmaður Dominos deildanna auk þess að vera meðal efnilegustu leikmanna Íslands um þessar mundir. 

 

Því er ljóst að 26. maí 1998 var happadagur íslensks körfubolta þar sem bæði eru gríðarleg efni, leika mjög stór hlutverk í sínum félagsliðum þrátt fyrir ungan aldur og verður fróðlegt að sjá hversu langt þau ná í íþróttinni. 

 

Bæði verða í eldlínunni með sínum liðum í kvöld en KR getur sópað Þór Ak úr leik í átta liða úrslitum Dominos deildar karla með sigri í kvöld. Emelía Ósk og Keflavík mæta Snæfell í Stykkishólmi en liðin eru í efstu tveimur sætum deildarinnar og því um stórleik að ræða. 

 

Fréttir
- Auglýsing -