HomeBónus deildinBónus deild kvennaEfnilegur þjálfari í Laugardalinn

Efnilegur þjálfari í Laugardalinn

Bogi Sigurbjörnsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Ármanni. Bogi er 22 ára gamall og efnilegur þjálfari sem hefur áður þjálfað hjá uppeldisfélagi sínu, Tindastóli, ásamt því að hafa starfað hjá Stjörnunni á síðasta ári við góðan orðstír.

Auk þess að aðstoða Friðrik með meistaraflokk kvenna mun Bogi taka að sér þjálfun 12. flokks kvenna og gegna hlutverki styrktarþjálfara fyrir bæði kvenna- og karla-meistaraflokk félagsins. Hjá Ármanni ríkir mikill stolt og ánægja með að fá Boga inn í þjálfarateymið fyrir komandi tímabil.

Fréttir
- Auglýsing -