HomeFréttirDwight Howard sendir borgarbúum Orlando kveðjubréf

Dwight Howard sendir borgarbúum Orlando kveðjubréf

 Fyrir ykkur sem fylgist með NBA þá eru allar líkur á því að þið séuð komin með nóg af Dwight Howard og öllu því drama sem honum fylgir.  Hann er þó ekki kominn með nóg og sendi borgarbúum Orlando kveðjubréf þar sem hann þakkar þeim stuðninginn í gegnum árin og lýsir yfir óendanlegri ást sinni á borginni.  Það verður því forvitnilegt að heyra hvað hörðustu aðdáendur Orlando hafa um málið að segja en flestir eru þó á því að Dwight Howard hafi ekki verið í náðinni hjá þeim þegar hann fór.  
Dwight hefur nú skrifað undir hjá Los Angeles Lakers, í borg hollywood og fræga fólksins.  Það má því búast við því að hann haldi áfram að skemmta fylgjendum NBA innan sem utan vallar með uppátækjum sem þessum.  Bréfið í heild sinni má sjá hérna fyrir ofan.
 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -