Ofurmiðherjinn Dwight Howard sem gekk til liðs við Los Angeles Lakers í sumar er ennþá að glíma við þrálát meiðsli í baki. Dwight spilaði lítið á síðasta tímabili vegna meiðsla og hafa Lakers því gefið það út að hann muni ekki vera orðinn heill þegar liðið kemur saman til æfingabúða í október. Howard hefur sjálfur gefið það út að hann vonist til þess að vera orðinn heill fyrir fyrsta leik tímabilsins en Los Angeles hefur ekki verið tilbúið að gefa út neina dagsetningu á endurkomu hans á parketið.
Eins og frægt er bættu Lakers við nokkrum stórum nöfnum í sumar en ásamt Howard fengu þeir til sín stjörnubakvörðinn Steve Nash, Chris Duhon, Antwan Jamison og Jodie Meeks. Það verður áhugavert að sjá hvernig Lakers stilla upp sínu byrjunarliði án Dwight Howard.




