Oklahoma City Thunder vann í nótt sinn fyrsta leik í úrslitum NBA deildarinnar í sögu félagsins enda liðið að leika í fyrsta sinn í lokaúrslitum deildarinnar. Oklahoma lagði Miami 105-94 á heimavelli sínum og leiða því einvígið 1-0. Kevin Durant fór fyrir liði Oklahoma sem fyrr með 36 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar og þar af 17 stigí fjórða leikhluta.
Russell Westbrook bætti við 27 stigum, 11 stoðsendingum og 8 fráköstum hjá Oklahoma og Ibaka mætti með 10 stig og 6 fráköst. Hjá Miami var LeBron James með 30 stig, 9 fráköst og 4 stoðsendingar og Dwyane Wade gerði 19 stig og gaf 8 stoðsendingar.
Í NBA deildinni eru það 72,7% liða sem vinna fyrsta leik í úrslitaseríunni þau lið sem fara og verða NBA meistarar en Oklahoma eru 9-0 á heimavelli í úrslitakeppninni.
Annar leikur liðanna fer fram á föstudagskvöld og verður sá leikur einnig á heimavelli Oklahoma en að þeim leik loknum færist einvígið yfir til Miami.






