HomeFréttirDurant besti maður stjörnuleiksins - Vestrið vann í 301 stigs leik

Durant besti maður stjörnuleiksins – Vestrið vann í 301 stigs leik

Stjörnuleikur NBA deildarinnar fór fram í nótt þar sem vesturströndin hafði betur gegn austurströndinni 152-149. Alls 301 stig skorað í leiknum þar sem Kevin Durant, leikmaður Oklahoma City Thunder, var valinn besti maður leiksins með 36 stig, 7 fráköst og 3 stoðsendingar.
LeBron James var stigahæstur í liði austurstrandarinnar með 36 stig, 7 stoðsendingar og 6 fráköst. Dwyane Wade mætti svo í Stjörnuleikinn og bætti við þrennu takk fyrir, 24 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar.
 
Kobe Bryant varð í nótt stigahæsti leikmaður Stjörnuleikjanna frá upphafi þegar hann skoraði 27 stig í leiknum og tók þar með fram úr Michael Jordan sem fyrir leikinn í nótt hafði skorað flest stig allra í Stjörnuleiknum. Jordan skoraði 262 stig í Stjörnuleikjum NBA en Kobe er nú kominn upp í 271 stig.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -