Alba Berlin tryggði sér annað sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með öruggum sigri á Jena í lokaumferð deildarkeppninnar í dag.
Þótt gestirnir hafi mætt af krafti og verið með yfirhöndina framan af leik tókst Martin og félögum að sigra að lokum með átján stiga mun, 83-65. Liðið bíður nú þess að sjá hverjir mótherjar þeirra verða í úrslitakeppninni, sem skýrist eftir umspil liðanna í neðri sætunum.
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson lék stórt hlutverk í sóknarleik Alba Berlin og var sá leikmaður sem gaf flestar stoðsendingar allra á vellinum. Martin spilaði í 24 mínútur og dreifði boltanum vel, en hann lauk leik með níu stoðsendingar, fjögur fráköst og fimm stig.




