HomeFréttirDrungilas frá næstu vikur

Drungilas frá næstu vikur

Samkvæmt Arnari Guðjónssyni þjálfara Tindastóls má búast við að Adomas Drungilas verið frá í það minnsta næstu 4 til 6 vikurnar. Drungilas var í hefðbundnu sniðskoti með smá traffík í teig Njarðvíkinga sl. föstudag þegar hann kom niður og snéri nokkuð hressilega á ökklann, í raun svo hressilega að öll ca. 120 kílóin á kappanum þvinguðu ökklann í einhverja 90° beygju. Drungilas sem að öllu jöfnu virðist ekki kveinka sér mikið lá eftir og lét í sér heyra af sársauka.

Ljóst er að Tindastólsmenn verða því án þessa sterka miðherja síns í það minnsta næstu mánuði á meðan kappinn jafnar sig á og kemur sér aftur á parketið. “Þetta er drullu fúlt svo ekki sé meira sagt. En hann mun fara núna í myndatöku fyrir norðan í vikunni og þá fáum við staðfestingu á því hvað nákvæmlega er að. Það er alltaf hreinu að hann verður ekki með okkur næstu vikurnar” sagði Arnar í samtali við Karfan.is

Á myndinni að neðan sem er skjáskot úr beinni útsendingu Sýn, þá sést hvernig ökklinn fer við lendingu.

Fréttir
- Auglýsing -