spot_img
HomeFréttirDrengjaflokkur Vestra sigraði á Scania Cup

Drengjaflokkur Vestra sigraði á Scania Cup

Drengjaflokkur Vestra sigraði í dag hið sterka Scania Cup mót í Svíþjóð í sínum aldursflokki eftir frækilegan sigur á norska liðinu Ulriken Eagles 58-60. Vestri og Snæfell telfdu fram sameiginlegu liði undir merkjum Vestra, en fjórir liðsmenn koma úr Snæfelli og sex úr röðum Vestra. Þjálfari liðsins er Nebojsa Knezevic frá Vestra.

Vestri hafnaði í öðru sæti síns riðils eftir einn sigur og eitt tap. Í sextán liða úrslitunum mættu þeir Skuru Basket frá Svíþjóð og unnu öruggan sigur 70-52. Í átta liða úrslitum mættu þeir svo danska liðinu BMS Herlev og unnu 60-68. Í undanúrslitum mættu þeir sænska liðinu Onsala Pirates og unnu öruggan sigur 51-71. Úrslitaleikurinn var, eins og áður segir, gegn norska liðinu Ulriken Eagles þar sem úrslitin réðust á lokasekúndunum með 58-60 sigri Vestra. Stigahæstir Vestra í úrslitaleiknum voru Hugi Hallgrímsson með 20 stig og Ísak Örn Baldursson með 14 stig.

Hópurinn ásamt þjálfurum og fararstjórum.

Að mótinu loknu var Hugi valinn „Scania King“, verðlaun sem hlotnast þeim leikmanni mótsins sem skarar fram úr, eða MVP (Most Valuable Player). Ísak Örn úr Snæfelli fékk svo verðlaun fyrir mesta baráttuhuginn og báðir voru þeir valdir í „All Star“ lið mótsins ásamt tveimur leikmönnum silfurliðsins og einum úr bronsliðinu.

Myndir: Körfuknattleiksdeild Vestra

Fréttir
- Auglýsing -