spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2027Dregið í riðla fyrir undankeppni EuroBasket 2027 í beinni útsendingu hér kl....

Dregið í riðla fyrir undankeppni EuroBasket 2027 í beinni útsendingu hér kl. 11:00

Í dag kl. 11:00 verður dregið í undankeppni Eurobasket kvenna 2027.

Gefið var út fyrirkomulag keppninnar í síðustu viku og þá var það ljóst að Ísland er í þriðja styrkleikaflokki af fjórum þegar dregið verður.

Í heild eru það 27 þjóðir sem taka þátt í undankeppninni, en í dag verður dregið í 6 riðla með 4 liðum og einn með 3 liðum. Lokakeppni EuroBasket fer fram í Belgíu, Finnlandi, Litháen og Svíþjóð og verða þessar þjóðir saman í áttunda riðilinum.

Fyrri hluti forkeppninnar fer fram í nóvember 2025 og mars 2026, í 2 gluggum og leikur hver þjóð 3 leiki í hvorum glugga og eru það svo tvö efstu lið riðlana sem fara áfram í seinni hluta undankeppninnar ásamt þeim þremur liðum sem standa sig best, en enda í þriðja sæti síns riðils. Frakkland, Ítalía, Spánn, Tékkland, Tyrkland, Ungverjaland og Þýskaland bætast öll við í seinni hlutanum, þar sem þau en þau taka þátt í forkeppni HM 2026 núna í mars 2026.

Seinni hluti forkeppni EuroBasket 2027 fer fram í tveim gluggum í nóvember 2026 og febrúar 2027. Þar verður liðunum 24 skipt í 6 riðla og 2 efstu úr hverjum riðli komast á EuroBasket 2027 ásamt heimaþjóðunum fjórum.

Hér má lesa nánar um fyrirkomulag forkeppninnar.

Fréttir
- Auglýsing -