spot_img
HomeFréttirDregið í forkeppni bikarkeppni yngri flokka í gær

Dregið í forkeppni bikarkeppni yngri flokka í gær

10:17
{mosimage}

(Ágúst Björgvinsson bar sig faglega að við dráttinn og þeir Stefán Þór mótastjóri KKÍ og Kristinn Pálsson íþróttafulltrúi KKÍ sáu til þess að allt yrði eftir kúnstarinnar reglum)

Í gærdag var dregið í forkeppni að 16-liða úrslitum bikarkeppni yngri flokka. Forkeppni þarf að leika í 9. og 10. flokki karla. Ágúst Björgvinsson, landsliðsþjálfari A-liðs kvenna og mfl. kk. hjá Hamri aðstoðaði við að draga ásamt Kristni G. Pálssyni íþróttafulltrúa KKÍ. Mjög góð skráning var í bikarkeppnina en alls skráðu 23 félög lið til keppni í bikarkeppninni í vetur. Að auki eru 11 B-lið skráð til leiks að þessu sinni. Forkeppnin verður leikin dagan 23. október til 30. október en 16-liða úrslit hefjast 20. nóvember. Þetta kemur fram á www.kki.is

Forkeppni:

10. flokkur karla

Breiðablik-A – Keflavík-A

Haukar – Fjölnir-B

UMFN – Sindri

ÍR – Fjölnir-A

FSu – UMFH

Breiðablik – B-Hamar

9. flokkur karla

Valur – UMFN

FSu – Keflavík-B

Keflavík-A – Kormákur

Breiðablik-A – KR

UMFG – Fjölnir-A

Sigurvegarar úr þessum viðureignum komast áfram og leika í 16-liða úrslitum sem verða leikin í enda nóvember.

Mynd: Jón Björn Ólafsson – [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -