spot_img
HomeFréttirDregið í átta liða úrslitum Maltbikarsins

Dregið í átta liða úrslitum Maltbikarsins

Öllum leikjum er lokið í 16 liða úrslitum í Maltbikarkarla og kvenna.  Margir skemmtilegir leikir fóru fram og er nú ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð bikarsins.

 

Átta lið eru eftir í Maltbikar karla en þar af eru fimm úr Dominos deildunum. Þrjú eru úr fyrstu deild, FSu, Valur og Höttur. 

 

Í Maltbikar kvenna eru átta lið eftir en fjögur sátu eftir í síðustu umferð. Sex þeirra eru úr Dominos deildinni en auk þess er KR og Breiðablik úr 1. deildinni.

 

Öll liðin sem eftir eru má sjá hér að neðan: Dregið verður í næstu umferð í dag (6. desember) kl 12:15 og verður Karfan.is með beina lýsingu á Twitter.

 

16. lið í Maltbikar karla:

 

Höttur

Valur

Haukar

Grindavík

KR

Þór Ak

FSu

Þór Þ.

 

Átta lið í Maltbikar kvenna:

 

Grindavík

Snæfell

Skallagrímur

Breiðablik

Stjarnan

Haukar

Keflavík

KR

 

 

Mynd / Jón Björn – Grindavík fagnar sigri gegn Njarðvík í 16 liða úrslitum. 

 

Fréttir
- Auglýsing -