10:29
{mosimage}
Í dag fimmtudag 29. nóvember kl. 13:30 verður dregið í 16 liða úrslit í Lýsingarbikar karla og kvenna. Það er talsverð spenna í loftinu fyrir bikardráttinn þar sem öll lið úr Iceland Express deild karla eru enn í pottinum. Það má því búast við einhverjum stórleikjum í 16-liða úrslitum.
Dregið verður í fundarsal á 2.hæð á Hilton hótelinu Suðurlandsbraut. Bikardrættinum verður lýst í beinni útsendingu hjá Valtý Birni í þættinum Mín skoðun á X-inu 9,77. Þá mun karfan.is reyna eftir fremsta megni að vera með beina textalýsingu frá drættinum undir liðnum ,,Leikir í beinni.”



