HomeLandsliðinEuroBasket 2027Dramatískur sigur í Ólafssal: Ísland lagði Portúgal í miklum spennuleik

Dramatískur sigur í Ólafssal: Ísland lagði Portúgal í miklum spennuleik

Íslenska landsliðið tryggði sér afar dýrmætan og kærkominn sigur gegn Portúgal í Ólafssal í undankeppni EuroBasket 2027 þar sem lokatölur urðu 62-60.

Þessi sigur markar tímamót þar sem þetta er fyrsti sigur liðsins síðan í nóvember árið 2024 þegar Rúmenía lá velli heima í undankeppni heimsmeistaramótsins. Ísland tók þátt í krefjandi þriggja liða riðli ásamt sterku liði Serbíu og Portúgals en þrátt fyrir öfluga baráttu höfðu aðrir leikir í riðlinum tapast fram að þessu.

Með þessum úrslitum hafnar Ísland í þriðja sæti síns riðils og munaði grætilega litlu að liðið tryggði sér sæti á lokamótinu. Möguleiki var á að komast áfram sem eitt af þremur bestu liðunum sem enduðu í þriðja sæti sinna riðla en í þeim samanburði endaði Ísland í fjórða sæti. Það er því ljóst að íslenska liðið var aðeins hársbreidd frá því að ná takmarkinu í þetta skiptið þótt niðurstaðan hafi því miður ekki dugað til að tryggja áframhaldandi þátttöku í keppninni.

Eftir nokkur klikkuð sniðskot í upphafi leiks jafnaði íslenska liðið sig og náði nokkrum stolnum boltum sem skiluðu sér í auðveldum körfum. Dómarar leiksins leyfðu talsverðar snertingar í upphafi en svo fannst þeim harkan vera fullmikil og leiðréttu línuna til baka. Áberandi lítið stigaskor var í byrjun og eftir sex mínútna leik var staðan aðeins 7–8.

Staðan eftir fyrsta leikhluta var 14–19. Eftir að hrollurinn var farinn úr leikmönnum fóru nokkrir þristar að detta, sérstaklega hjá gestunum sem settu þrjá af fjórum þristum sínum seint í leikhlutanum. Það var svo Anna Ingunn sem setti fyrsta þrist Íslands þegar tæpar níu mínútur voru liðnar af leiknum, en það getur verið erfitt að keppa við þá stærðfræði sem fylgir góðri nýtingu fyrir utan línuna.

Seigla og sveiflur fram að hálfleik

Íslenska liðið var að fá góð færi upp við hringinn sem voru ekki að detta. Þar fóru Dani Rodriguez og Isabella oft illa að ráði sínu og hefðu mátt klára færin oftar; það er gott að komast í opin skot en verra að nýta þau ekki. Íslandsóvinurinn Raquel Laneiro var að setja skotin sín og halda Portúgölum yfir. Erfitt er að skrifa mikið um upphaf annars leikhluta þar sem bæði lið hreinlega neituðu að skora þangað til Telma Dís smellti niður þristi og jafnaði leikinn í 27–27 þegar 100 sekúndur lifðu til hálfleiks. Dani fylgdi því eftir með þristi og víti að auki og Ísland var allt í einu komið yfir. Staðan í hálfleik var 31–30.

Ísland byrjaði þriðja leikhlutann af krafti og komst fljótlega sjö stigum yfir með góðum körfum frá Dani og Sigrúnu. Sara Rún bætti öðrum þristi við og þegar 10 stiga munur var staðreynd heyrðust fyrstu alvöru áhorfendahróp kvöldsins. Portúgalarnir bitu aðeins frá sér og minnkuðu muninn niður í fimm stig fyrir lokaleikhlutann, en Ísland hélt þeim frá sér með mikilvægum körfum. Stigaskorið var ögn eðlilegra í þessum hluta og staðan að honum loknum var 52–47.

Danielle tók völdin á lokasprettinum

Vondir tapaðir boltar og slök færanýting varð til þess að Portúgal komst aftur yfir í upphafi síðasta leikhlutans. Liðin skiptust svo á að skora ekki neitt fram undir miðbik hlutans þegar Danielle Rodriguez áttaði sig á því að hún væri besti leikmaður vallarins og tók heldur betur af skarið á báðum endum vallarins. Hún stal boltum, fiskaði villur og hélt áhorfendum á tánum.

Silva kom Portúgal þremur stigum yfir þegar tvær mínútur voru eftir en Sara Rún svaraði strax og loks skoraði Dani glæsilega körfu sem kom Íslandi yfir, 61–59, þegar aðeins mínúta og fimmtán sekúndur voru eftir. Eftir talsverðan barning, fimm sekúndna dóm, klikkuð víti hjá báðum liðum og skrítna tapaða bolta, innbyrti íslenska liðið gríðarlega sætan tveggja stiga sigur, 62–60. Danielle Rodriguez var stigahæst íslenska liðsins með 20 stig og Sara Rún Hinriksdóttir fylgdi henni eftir með 16 stig.

Tölfræði leiks

Myndasafn (Gunnar Jónatans)

Fréttir
- Auglýsing -