spot_img
HomeFréttirDramatískur sigur hjá Hauki Helga og CB Breogan

Dramatískur sigur hjá Hauki Helga og CB Breogan

Haukur Helgi og félagar í CB Breogan sigruðu nágranna sína í CB Ourense í spænsku b-deildinni í kvöld.
 
Haukur Helgi setti 6 stig og reif niður 4 fráköst á 20 mínútum en það var bandaríski leikmaðurinn Tyrus McGee sem skoraði sigurkörfuna á lokasekúndum leiksins. Sætur en dramatískur 2 stiga sigur, 62-60 fyrir CB Breogan í grannaslagnum.
 
CB Breogan er nú 5-1 í deildinni og deilir efsta sætinu með BC Andorra.
 
Myndband af sigurkörfunni náðist frá pöllunum en góð stemning var á leiknum ef marka má myndbandið.
 
 
www.visir.is
 
Fréttir
- Auglýsing -