Febrúarmánuður ætlar að reynast Haukum erfiður en liðið hefur ekki unnið leik síðan 8. febrúar þegar liðið vann Hamar í IEX-deildinni. Fjölnir gerði sér góða ferð í Schenker-höllina í kvöld og fór í Grafarvoginn með tvö stig í farteskinu eftir eins stigs sigur, 67-68.
Leikurinn var ekki, ef svo mætti að orði komast, tilþrifamikill en byrjuðu Haukar betur. Haukar komust í 13-5 þegar fjórar mínútur voru búnar af leikhlutanum en þá rönkuðu Fjölnisstúlkur við sér, stöðvuðu Haukana gjörsamlega og leiddu 13-20 þegar leikhlutanum lauk.
Haukar tóku við sér í öðrum leikhluta og komust yfir 26-25 með þriggja stiga skoti frá Írisi Sverrisdóttur. Varnarleikur Hauka var að virka vel en þær skiptu yfir í svæðisvörn sem virtist trufla gestina nokkuð. Haukar leiddu í hálfleik með 6 stigum 35-29.
Liðin skiptust á körfum í þriðja leikhluta þó svo að heimastúlkur væru ávallt skrefinu á undan og leiddu Haukar með sama mun eftir leikhlutann 51-45.
Fjölnir byrjaði leikhlutann betur og minnkuðu muninn í eitt stig strax á upphafs mínútunum í 55-55 og komust svo yfir um hann miðjan 59-60. Liðin skiptust svo á körfum út leikhlutann en það var Brittney Jones sem að setti risa körfu þegar aðeins 14 sekúndur lifðu leiks og kom Fjölni yfir 66-68. Sókna Hauka gekk ekki upp og Jones fékk boltann í hendurnar og Haukar brutu strax á henni. Hún fékk tvö vítaskot sem að hún setti niður og kom Fjölni fjórum stigum yfir.
Jence Rhoads brunaði upp völlinn og tók þriggja stiga skot en brotið var á henni og fékk hún þrjú vítaskot fyrir vikið. Rhoads setti öll skotin niður og aðeins 0.5 sekúndur voru eftir á klukkunni. Haukar pressuðu stíft og gerðu leikmönnum Fjölnis það erfitt fyrir að koma boltanum inn á völlinn. Um leið og boltinn barst í hendurnar á leikmanni Fjölnis flautaði dómarinn. Það virtist eins og hann væri að dæma villu, benti svo í átt Hauka en endaði svo á að benda í átt Fjölnis. Bragi Magnússon var greinilega búinn að óska eftir leikhléi og Fjölnir byrjaði með boltann á sóknarhelmingi sínum. Enginn tími var fyrir Hauka að framkvæma nokkuð því flautan gall um leið og boltinn kom í leik og sigur Fjölnis staðreynd.
Fjölnisstúlkur jöfnuðu Hamar að stigum en sitja enn í neðsta sæti deildarinnar en Haukar eru sem stendur í 4. sæti, fjórum stigum á eftir Snæfell sem að lagði KR í kvöld.
Brittney Jones var stigahæst Fjölnis með 25 sig og 7 fráköst og Katina Mandylaris var með 10 stig og 8 fráköst.
Hjá Haukum var Jence Rhoads með 31 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar og Margrét Rósa Hálfdanardóttir gerði 10 stig og tók 5 fráköst. Íris Sverrisdóttir var einnig með 10 stig og 6 fráköst.



