Aþena hefur neyðst til þess að draga meistaraflokk kvenna úr keppni í Bónusdeildinni. Að sögn Brynjars Karls, forsvarsmanns félagsins, er ástæðan áhugaleysi Reykjavíkurborgar sem hefur ekki endurnýjað rekstrarsamning eða leyft félaginu að byggja upp aðstöðu í Austurbergi á eigin kostnað. Óvissan varð til þess að afreksstarfið lenti í uppnámi þar sem ekki var hægt að semja við leikmenn eða þjálfara.
Brothvarf meistaraflokksins hefur veruleg áhrif á barna- og unglingastarfið í hverfinu þar sem leikmenn liðsins voru jafnframt þjálfarar og fyrirmyndir um 120 stúlkna í Efra-Breiðholti. Brynjar bendir á að starfsemin sé mikilvægt forvarnarstarf á svæði þar sem íþróttaþátttaka er einna minnst í borginni. Þrátt fyrir áfallið segir hann að félagið muni áfram berjast fyrir ungviðið í hverfinu.



