Vefsíðan Draftsite.com setur Helenu Sverrisdóttur inn í nýliðaval WNBA deildarinnar fyrir komandi leiktíð í sumar. Vefsíðan er óháð, þ.e. ekki tengd kvennadeild NBA né öðrum landssamtökum í íþróttum innan Bandaríkjanna svo um nokkurs konar spá er að ræða eða ,,Mock-draft“ eins og þetta er kallað Vestanhafs.
Helena kemur fram hjá Draftsite.com í þriðju umferð og þá valin af Seattle Storm sem einnig myndu þá tryggja sér Danielle Adams frá Texas A&M í fyrstu umferð og Cetera Degraffenreid frá UNC í annarri umferð. Adams er framherji en Cetera og Helena báðar bakverðir.
Spekingarnir eru því komnir á fullt enda úrslitakeppnin í NCAA háskólabolta karla og kvenna í fullum gangi og því vertíð á þessu sviði sem og annarsstaðar.
Í umræddu Mock-drafti hjá Draftsite.com er Helena valin nr. 36 í nýliðavalinu en fyrsti valkostur er Maya Moore frá Connecticut en hún yrði þá valin af Minnesota.
Spennandi tímar framundan hjá Helenu Sverrisdóttur sem nýverið lauk glæstum háskólaferli með TCU.





