spot_img
HomeÚti í heimiEuroleagueDoncic eftir sigurinn í Euroleague: Ótrúleg tilfinning

Doncic eftir sigurinn í Euroleague: Ótrúleg tilfinning

Spænska stórliðið Real Madrid lyfti meistaratitlinum í Euroleague þetta tímabilið eftir frábæran úrslitaleik gegn evrópumeisturum síðasta árs, Fenerbache. 

 

Real Madrid voru gríðarlega sterkir undir körfunni og tóku þrettán sóknarfráköst en mörg þeirra komu á stórum augnablikum. Það voru að lokum Madrídingar sem lyftu titlinum með 85-80 sigri en Tyrkirnir gerðu sitt besta til að jafna í lokin en það var of lítið og of seint. 

 

Luka Doncic heldur áfram að hlaða á sig viðurkenningum en hann var valinn besti leikmaður (MVP) undanúrslitahelgarinnar. Í gær var hann valinn besti leikmaður Euroleague á tímabilinu og því ótrúlegur árangur sem þessi 19. ára gamli slóveni er að ná.

 

Hann var í skýjunum eftir leik og sagði tilfinninguna magnaða. Viðtal við Doncic má finna hér að neðan:

 

 

Fréttir
- Auglýsing -