HomeFréttirDomino´s deild karla hefst í kvöld

Domino´s deild karla hefst í kvöld

Í kvöld hefst keppni í Domino´s deild karla en þá eru þrír leikir á dagskrá sem allir hefjast kl. 19:15. Á árlegum kynningarfundi KKÍ fyrir úrvalsdeildarinnar kom fram í spá þjálfara, forráðamanna og fyrirliða að það yrðu röndóttir KR-ingar sem yrðu Íslandsmeistarar. KR byrjar á útivelli í kvöld þegar liðið mætir Fjölni í Dalhúsum.
Leikir kvöldsins í Domino´s deild karla:
 
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
 
Fjölnir-KR
Bæði lið hafa gengið í gegnum töluverðar breytingar, bæði lið með nýjan þjálfara og nýja erlenda leikmenn. KR skartar þremur leikmönnum úr landsliðshópi Peter Öqvist síðan í sumar en það eru þeir Helgi og Finnur Magnússynir og Brynjar Þór Björnsson. Fjölnismenn hafa endurheimt Tómas Heiðar Tómasson frá námi í Bandaríkjunum en búist er við því að hann og Árni Ragnarsson muni leiða liðið þessa leiktíðina.
 
Tindastóll-Stjarnan
Í báðum tilfellum hægt að segja að kjarninn sé sá sami. Þessum tveimur liðum var þó spáð víðsfjarri hvoru öðru, Stjörnumenn hafna í 2. sæti ef spár ganga eftir en forráðamenn, þjálfarar og fyrirliðar telja að Tindastóll hafni í 9. sæti og missi þar með rétt svo af úrslitakeppninni.
 
KFÍ-Skallagrímur
Nýliðaslagur strax í fyrstu umferð. Hér gæti eitthvað gengið á. Báðum liðum er spáð falli en annað þeirr mun í kvöld næla sér í sín fyrstu stig í úrvalsdeild. Breytingar á báða bóga en sömu menn í brúnni. Tveir ferskir þjálfarar hér á ferðinni í Pálma og Pétri, strákar sem eiga skó uppi í hillu sem enn eru ekki orðnir kaldir og verður gaman að sjá hvaða áherslur þeir koma með inn hjá sínum liðum.
 
Þá minnum við á dominosdeildin.is – þeir sem ætla að vera með í leiknum þurfa að standa skil á sínu liði eigi síðar en korteri fyrir leik. Samkvæmt heimildum okkar á Karfan.is eru liðin í kvennaboltanum í kringum 500 og þau eru farin yfir 1000 í karlaboltanum. Ljóst að það eru margir um hituna enda verðlaunin ekki af verri endanum.
 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -