spot_img
HomeFréttirDLo í fantaformi er Lakers unnu enn einn leikinn - Stefna hraðbyr...

DLo í fantaformi er Lakers unnu enn einn leikinn – Stefna hraðbyr inn í úrslitakeppni Vesturstrandarinnar

Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt.

Í Crypto höllinni í Los Angeles lögðu heimamenn í Lakers lið Toronto Raptors 112-122. Atkvæðamestur fyrir Lakers í leiknum var D´Angelo Russell með 28 stig, 5 fráköst og 9 stoðsendingar. Fyrir Raptors var það ungstirnið Scottie Barnes sem dró vagninn með 32 stigum, 9 fráköstum og 7 stoðsendingum.

Sigurinn var sá sjöundi í síðustu tíu leikjum fyrir Lakers sem um þessar mundir eru eitt heitasta lið deildarinnar og stefna hraðbyr inn í úrslitakeppni Vesturstrandarinnar. Nokkuð langt er í efstu lið deildarinnar, en nú þegar 15 leikir eru eftir af tímabili þeirra eru þeir aðeins einum sigurleik frá 6. sætinu og einum og hálfum sigurleik frá 5. sæti deildarinnar.

Staðan í deildinni

Úrslit næturinnar:

Portland Trail Blazers 119 – 120 Philadelphia 76ers

Atlanta Hawks 114 – 107 Washington Wizards

Cleveland Cavaliers 115 – 119 Miami Heat

Brooklyn Nets 124 – 123 Minnesota Timberwolves

Denver Nuggets 120 – 128 San Antonio Spurs

Toronto Raptors 112 – 122 Los Angeles Lakers

Fréttir
- Auglýsing -