Njarðvík og Valur mættust í lokaumferð Bónusdeildar kvenna í IceMar-Höllinni í kvöld. Löng saga stutt hafði Njarðvík 87-61 sigur í leiknum og lauk því leik í 2. sæti deildarkeppninnar og mætir Tindastól í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Valur mætir þá Grindavík í fyrstu umferðinni.
Liðin voru ekki fullskipuð í kvöld, Helena Rafnsdóttir snaraði sér upp flensu í Njarðvíkurliðinu og Valsmegin voru þær Þóranna og Ásta Júlía báðar á tréverkinu í borgaralegum klæðum.
Gestirnir frá Hlíðarenda leiddu í hálfleik 35-36 eftir brösugar fyrstu 20 mínútur leiksins. Njarðvíkingar t.d. aðeins með 17% þriggja stiga nýtingu en Dinkins leiddi þær með 14 stig og Reshawna var með 11 Valsmegin.

Bæði lið dreifðu mínútunum vel milli leikmanna í kvöld, allar á skýrslu snertu parketið og sumar nýttu tækifærið vel. Inga Lea t.d. með 9 stig hjá Njarðvík af bekknum og Kristín Björk með ljómandi rispur og þá kom Ísey með 11 af Valsbekknum.
Það voru Njarðvíkingar með Dani og Dinkins í broddi fylkingar sem stýrðu síðari hálfleik, unnu þriðja leikhluta 26-15 og leiddu 61-51 fyrir fjórða leikhluta. Eftir þetta virtist eftirleikurinn auðveldur og Njarðvík sigldi inn 87-61 sigri og mæta því Tindastól í fyrstu umferð eins og áður segir og Valur tekur á móti Grindavík.
Dinkins var nokkuð nærri ansi groddaralegri þrennu með 38 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar að viðbættum 6 stolnum boltum. Stigahæst í liði Vals var Reshwana með 13 stig en hún gerði aðeins 2 stig í síðari hálfleik.
Næst á dagskrá er svo sjálf veislan, úrslitakeppni og því ráð fyrir stuðningsmenn að finna söngröddina og styðja sín liðl.





