Ármann missti laxinn í löndun
Allt stefndi í öruggan sigur Ármenninga í IceMar-Höllinni í kvöld en magnaður lokasprettur Njarðvíkinga færði þeim sigur í framlengingu. Brittany Dinkins fór á kostum í endurkomunni og bar Njarðvíkinga á herðum sér í fjórða og framlengingunni þar sem lokatölur reyndust 85-73 Njarðvík í vil. Njarðvíkingar því komnir aftur á toppinn með Haukum og KR með 24 stig.
Ármenningar mættu með þéttan varnarleik í IceMar-Höllina í kvöld og héldu Njarðvík í aðeins 25 stigum í fyrri hálfleik. Gestirnir leiddu 25-33 í hálfleik þar sem Sylvía Rún Hálfdanardóttir var að leika fantavel og þá sérstaklega varnarmegin en Sylvía var með 9 stig og 6 fráköst í fyrri hálfleik. Stigahæst Ármenninga var Kylie með 11 stig og 7 fráköst en hjá heimakonum var Dani með 13 stig og 6 fráköst.
Bæði lið með helst til dræma skotnýtingu í fyrri hálfleik, bæði td 12% í þriggja, en Ármenningar að leika betri vörn og því yfir í leikhléi. Reyndar var þetta stigalægsti fyrri hálfleikur Njarðvíkinga á tímabilinu sem að jafnaði eru með um 44 stig í fyrri hálfleik en í kvöld aðeins 25 á fyrstu 20 mínútunum.

Nýliðarnir úr Laugardalshöll héldu áfram að auka bilið í þriðja leikhluta, gerðu jafnvel enn betur varnarlega og héldu Njarðvíkingum í 7 stigum í þriðja og leiddu því 32-48 fyrir fjórða leikhluta. Afar lítið skorað í IceMar-Höllinni fyrstu 30 mínútur leiksins en það var Dzana Crnac fyrrum leikmaður Njarðvíkur sem átti sterkar rispur fyrir Ármann í þriðja og var orðin stigahæst gestanna með 14 stig.
Ármenningar náðu forystunni upp í 20 stig eða 40-60 en þá kom 14-5 kafli hjá Njarðvíkingum sem minnkuðu muninn í 54-65 með 2.43 mín eftir af leiknum. Hér var sjóðheit Dinkins á ferðinni og hún var ekki búin að syngja sitt síðasta!
Spurningin var hvort heimakonur eftir afar andlausan leik til þessa gætu gert þetta að naglbít eða ekki! Njarðvíkingar héldu áhlaupinu áfram og náðu að minnka muninn í 61-65 og 26,8 sekúndur til leiksloka og áhlaupið því orðið 21-5 hjá heimakonum.
Njarðvík braut strax þar sem hin öfluga Kylie setti bæði vítin og kom Ármanni í 61-67 en þá tók Dinkins til sinna ráða, hún skoraði tvo þrista í röð (Ármann missti tvö víti á milli þeirra) og Dinkins jafnaði metin 67-67 með 7,7 sekúndur eftir af leiknum. Ármenningar náðu ekki að skora á þessum tíma og því varð að framlengja!
Njarðvík setti 35 stig í fjórða leikhluta, meira en þær skoruðu alla fyrstu þrjá leikhluta leiksins samanlagt. Ármenningar að sama skapi sofnuðu á verðinum og Dinkins héldu engin bönd, hún hélt áfram á sömu nótum í framlengingunni og Njarðvík lokaði þeim fimm mínútum af öryggi 18-6 og leiknum 85-73.
Magnaður endurkomusigur hjá Njarðvík en Ármenningar að sama skapi svekktir með að missa laxinn í löndun.
Dinkins lauk leik með 36 stig og 9 fráköst og Dani bætti við 25 stigum, 11 fráköstum og 7 stoðsendingum. Helena Rafnsdóttir stimplaði svo inn tvennu með 12 stig og 12 fráköst. Hjá Ármenningum var Kylie með 18 stig og 12 fráköst og Dzana setti 16 stig á sitt gamla félag Njarðvík. Dzana og Sylvía Rún voru flottar í kvöld en Sylvía var með hörku tvennu, 15 stig og 16 fráköst ásamt því að spila magnaða vörn í kvöld.
Nú er baráttan um toppsætið í deildinni framundan hjá Njarðvík, KR og Haukum en öll þessi þrjú lið hafa 24 stig og Njarðvík tekur á móti Haukum í lokaumferðinni áður en deildinni verður skipt upp. KR hinsvegar leikur gegn Hamar/Þór en lokaumferðin fer fram 17. og 18. febrúar næstkomandi.




