spot_img
HomeFréttirDimitar rekinn frá Stjörnunni

Dimitar rekinn frá Stjörnunni

09:57
{mosimage}

 

(Dimitar) 

 

Bakvörðurinn Dimitar Karadzovski mun ekki leika með Stjörnunni á næstu leiktíð en Garðabæjarliðið hefur sagt upp samningi sínum við leikmanninn. Þetta kom fyrst fram á heimasíðu Stjörnunnar og á Sport.is

 

Ástæða uppsagnarinnar er sögð vera alvarlegur trúnaðarbrestur af hálfu leikmannsins. Karfan.is setti sig í samband við Braga Hinrik Magnússon þjálfara Stjörnunnar sem vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

 

Dimitar kom til Stjörnunnar fyrir þessa leiktíð frá Skallagrím í Borgarnesi og gerði hann 21,1 stig að meðaltali í 22 leikjum.

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -