Diamond Battles gengur til liðs við Ármann fyrir komandi tímabil í Bónusdeild kvenna.
Battles lék í NCAA-háskólaboltanum með UCF og Georgia, þar sem hún vann til margvíslegra einstaklingsverðlauna fyrir varnarleik sinn. Hún þekkir vel til á Íslandi en hún varð Íslandsmeistari með Haukum tímabilið 2024–2025 og skilaði þá 16,4 stigum, 4,9 fráköstum og 3,8 stoðsendingum að meðaltali í leik.




