spot_img
HomeFréttirDerrick Rose, endurkoman

Derrick Rose, endurkoman

 Mikið var rætt og skrifað um hrikaleg og ótrúlega óheppilega tímasett meiðsli Derrick Rose á síðasta tímabili.  Chicago menn höfðu ekki haft svona mikla trú á sínu liði síðan Jordan nokkur fór fyrir liðinu þegar D Rose átti að leiða liðið langt inní úrslitakeppnina.  Það fer þó að líða að því að Derrick Rose geti farið að láta taka til sín á vellinum aftur.  Derrick hefur þess vegna hafið auglýsingaherferð í samstarfi við Adidas sem byggir á endurkomu kappans á parketið.  Nýjasta afrek Adidas kallast D Rose 3 og hér má sjá nýjustu auglýsingu Adidas fyrir D Rose 3.
 Hetjan sýnir svo tilfinningar sýnar þegar skórinn er afhjúpaður og talar um hversu þakklátur hann er fyrir það hvar hann er í dag.  Sjón er sögu ríkari.  
 
 
Fréttir
- Auglýsing -