spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaDeildarmeistararnir mæta bikarmeisturunum í einvígi um Íslandsmeistaratitilinn

Deildarmeistararnir mæta bikarmeisturunum í einvígi um Íslandsmeistaratitilinn

Úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna rúllar af stað í kvöld.

Um er að ræða fyrsta leik deildarmeistara Hauka og bikarmeistara Njarðvíkur, en bæði lið sópuðu leið sína í úrslitin, Njarðvík gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Keflavíkur og Haukar gegn liði Vals.

Ekki er langt síðan Haukar og Njarðvík mættust síðast í úrslitum, en árið 2022 varð Njarðvík Íslandsmeistari í Ólafssal eftir æsispennandi einvígi gegn Haukum, 3-2.

Um er að ræða fyrsta leik liðanna, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Hérna er heimasíða deildarinnar

Leikur dagsins

Bónus deild kvenna – Úrslit

Haukar Njarðvík – kl. 19:15

(Einvígið er jafnt 0-0)

Fréttir
- Auglýsing -