Haukar voru mun betri aðilinn í seinni hálfleik. Skot þeirra voru að detta og mátti sjá ótrúlegustu skot rata í körfu Keflvíkinga. Á sama tíma voru skot gestanna ekki að vekja jafn mikla lukku og hægt og bítandi jókst munurinn á liðunum. Haukar komust 12 stigum yfir um miðjan þriðja leikhluta og leiddu með 13 eftir hann.
Haukar opnuðu leikhlutann á körfu og juku muninn enn frekar. Munurinn á liðunum varð meiri og meiri og á endanum var munurinn orðinn 20 stig á liðunum. Þetta var hreinlega of stór biti fyrir Keflavík að ná þessu upp enda lítið eftir af leiknum og Keflavík hefur ennþá tvo sénsa til að tryggja sér Deildarmeistaratitilinn.
Síðustu þrjár mínútur leiksins skiptu báðir þjálfarar minni spámönnum inn á sem kláruðu leikinn og eins og áður segir voru það Haukar sem að unnu öruggan sigur 84-68.
Með sigrinum lyfta Haukar sér upp í fjórða sæti en KR, sem að vann Val, er með jafn mörg stig. Snæfell er svo sæti ofar tveimur stigum á undan Haukum og KR.
Tierney Jenkins, nýr leikmaður í liði Hauka sem skipt var út fyrir Hope Elam, fór mikinn í sínum fyrsta leik en hún skoraði 24 stig, tók 17 fráköst, gaf 7 stoðsendingar, stal 7 boltum og varði 3 skot. Jence Rhoads var henni næst með 22 stig og 8 stoðsendingar og Íris Sverrisdóttir gerði 21 stig fyrir Hauka.
Hjá Keflavík var Pálína Gunnlaugsdóttir sú sem að dróg vagninn en Pálína gerði 22 stig og stal 4 boltum. Henni næst var Jaleesa Butler með 13 stig og 9 fráköst og Eboni Mangum var með 12 stig og 7 fráköst.
Myndasafn úr leiknum eftir Tomasz Kolodziejski



