spot_img
HomeFréttirDeildarkeppninni lýkur í kvöld

Deildarkeppninni lýkur í kvöld

Lokaumferð Dominos deildar karla fer fram í kvöld. Enn er spenna á mörgum vígstöðum og þá helst um miðja deild þar sem lið geta endað í allt frá fimmta til níunda sætis.

 

KR mun lyfta deildarbikarnum í kvöld hvernig sem leikur þeirra við Stjörnuna fer. Snæfell og Skallagrímur munu kveðja deildina með útileikjum í kvöld auk þess sem Haukar leika síðasta leik tímabilsins. Þar fyrir utan er ljóst að Tindastóll og Stjarnan verða í öðru og þriðja sæti deildarinnar. 

 

Að öðru leyti er sætaskipan á reiki. ÍR getur endaði í fimmta sæti og níunda sæti, því ljóst að allt getur gerst. Fjögur af sex liðunum sem eru í 4.-9. sæti mætast innbyrgðis í kvöld og því ljóst að spennan verður gríðarleg í kvöld. Nánar verður farið í möguleika liðanna á Karfan.is síðar í dag.

 

Leikir dagsins: 

 

Dominos deild karla:

 

ÍR-Keflavík kl 19:15 (í beinni á Stöð 2 sport 4)

Grindavík-Skallagrímur  kl 19:15

Þór Þ-Njarðvík  kl 19:15 (í beinni á Stöð 2 sport 2)

Þór Ak-Snæfell  kl 19:15 (í beinni á Thorsport.is)

KR-Stjarnan kl 19:15 (í beinni á KR TV)

Haukar-Tindastóll kl 19:15 (í beinni á TV.Haukar.is)

 

 

Mynd / Ómar Örn Ragnarsson – Flenard Whitfield og Skallagrímur kveðja deildina í kvöld.

Fréttir
- Auglýsing -