Grindavík lagði Álftanes í kvöld í 14. umferð Bónus deildar karla, 83-78.
Grindvíkingar sem áður í efsta sæti deildarinnar nú með 26 stig á meðan Álftanes eru í 8. sætinu með 12 stig.
Fyrir leik var ljóst að Grindvíkingar yrðu án besta leikmanns síns DeAndre Kane, en það munar um minna fyrir liðið þar sem hann hefur skilað 16 stigum, 6 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik í vetur.
Það voru heimamenn í Grindavík sem byrjuðu leikinn betur og leiddu með 5 stigum eftir fyrsta leikhluta. Álftnesingar náðu að svara fyrir sig og snéru taflinu sér í vil fyrir lok fyrri hálfleiks. Staðan þó jöfn, 43-43, er liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik.
Grindavík nær oftar en ekki að vera skrefinu á undan í upphafi seinni hálfleiksins, en með snöggu áhlaupi er það Álftanes sem leiðir með tveimur stigum fyrir lokaleikhlutann. Því forskoti hanga gestirnir á þangað til um miðjan fjórða fjórðung er Grindavík kemur til baka og nær forskotinu aftur. Á það byggja þeir svo og er leikurinn ekkert sérstaklega spennandi undir lokin, þó Grindvíkingar hafi þurft að hafa allan vara á. Niðurstaðan að lokum nokkuð sterkur sigur heimamanna, 83-78.
Stigahæstur fyrir Grindavík í leiknum var Khalil Shabazz með 23 stig og Ólafur Ólafsson bætti við 16 stigum.
Fyrir Álftanes voru stigahæstir Ade Murkey með 22 stig og David Okeke var honum næstur með 17 stig.
Grindavík: Khalil Shabazz 23/5 fráköst/5 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 16/14 fráköst, Jordan Semple 13/17 fráköst/5 stoðsendingar, Daniel Mortensen 12/5 fráköst, Arnór Tristan Helgason 12/5 fráköst, Isaiah Coddon 4, Kristófer Breki Gylfason 3, Ragnar Örn Bragason 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0.
Álftanes: Ade Taqqiyy Henry Murkey 22/13 fráköst, David Okeke 17/10 fráköst, Dúi Þór Jónsson 13, Haukur Helgi Briem Pálsson 11/5 fráköst/6 stoðsendingar, Rati Andronikashvili 6, Sigurður Pétursson 6, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 3, Duncan Tindur Guðnason 0, Hilmir Arnarson 0, Ingimundur Orri Jóhannsson 0, Almar Orn Bjornsson 0.




