I nýjasta þættinum af Boltinn lýgur ekki ræðir Sigurður Orri, stjórnandi þáttarins við Davíð Tómas Tómasson framkvæmdastjóra og fyrrverandi dómara.
Í þættinum kennir ýmissa grasa og er meðal annars fjallað um þá ákvörðun að bikarvika KKÍ fari fram í Smáranum en ekki í Laugardalshöll.
Davíð segir það alls ekki góða þróun að bikarinn sé núna haldinn í Smáranum frekar en í Laugardalshöll. “Þetta er sjoppulegt, með fullri virðingu fyrir Smáranum” voru meðal þeirra orða sem voru látin falla. Umræðan um Höllina eða Smáran byrjar á 00:50:10 og hlusta má á þáttinn hér á Spotify, eða undir nafni Boltinn lýgur ekki á öllum hlaðvarpsveitum.




