Darri Hilmarsson leikmaður KR mun flytja til Svíþjóðar að loknu tímabili og er því að leika sína síðustu leiki fyrir Íslandsmeistarana þessa úrslitakeppnina. Þetta staðfestir Darri í viðtali við tímarit Körfuknattleiksdeildar KR sem kom út í dag.
Kona Darra er á leið í sérnám í Svíþjóð og mun hann flytja með henni þangað. Ferli hans hjá KR lýkur því í vor en hann segir í viðtalinu að það að spila með frábærum liðum og einstaklingum standi mest uppúr.
KR hefur leik í úrslitakeppninni í kvöld þegar liðið mætir Njarðvík í átta liða úrslitum Dominos deildarinnar. Leikurinn hefst kl 19:15 í DHL-Höllinni en KR getur unnið fimmta Íslandsmeistaratitilinn í röð vinni þeir núna.
Tímaritið KR Karfa má finna hér. Í blaðinu eru mörg áhugaverð viðtöl við leikmenn meistaraflokka félagsins og margt annað.




