11:29
{mosimage}
(Flake)
Úrvalsdeildarfélagið Tindastóll hefur gengið frá samningi við Bandaríkjamanninn Darrell Flake um að leika með liðinu í vetur. Flake lék með Skallagrími síðustu tvö ár en gekk í raðir Breiðabliks í sumar. Þar var honum sagt upp á dögunum eins og svo mörgum öðrum erlendum leikmönnum í efstu deildum bæði í karla- og kvennaflokki. www.visir.is greindi frá þessu í gær.
Flake er 28 ára gamall og hefur verið einn besti leikmaður Iceland Express deildarinnar undanfarin ár. Hann skoraði tæp 24 stig að meðaltali í leik og hirti 13 fráköst með Skallagrími á síðustu leiktíð.
Lesa greinina í heild sinni:
http://visir.is/article/20081009/IDROTTIR03/632434291
Mynd: [email protected]



