HomeBónus deildinBónus deild kvennaDanielle Rodriguez valin sú besta ,,Er mikill heiður"

Danielle Rodriguez valin sú besta ,,Er mikill heiður”

Danielle Rodriguez, leikstjórnandi Njarðvíkur, var í dag útnefnd besti leikmaður Bónus deildar kvenna. Þetta er í fyrsta skipti sem hún hlýtur þessi eftirsóttu verðlaun, en hún hefur verið á meðal bestu leikmanna landsins um árabil. Danielle fagnaði þeim merka áfanga fyrir rúmu ári að fá íslenskan ríkisborgararétt og hefur síðan þá verið lykilmanneskja í íslenska landsliðinu.

Verðlaunahafar á lokahófi KKÍ

Njarðvík endaði í 2. sæti deildarinnar eftir öflugt tímabil og stefnir liðið ótrautt á titilinn. Fram undan er spennandi einvígi í átta liða úrslitum gegn Tindastóli.

Karfan spjallaði við Danielle rétt eftir að hún tók við verðlaununum eftirsóttu.


Fréttir
- Auglýsing -