Danielle Rodriguez leikstjórnandi Njarðvíkinga varð fyrir meiðslum í leiknum gegn Val í síðustu viku. Dani var nýkomin til baka eftir meiðsli sem hún varð fyrir á undirbúningstímabilinu en þessi meiðsli eru handarmeiðsli sem gera það að verkum að hún þarf í aðgerð. Frá þessu er greint á UMFN.is
Einar Árni þjálfari Njarðvíkurliðsins sagði að vissulega væri þetta mikil blóðtaka og það yrði að koma í ljós hve lengi Dani verði frá en vonir standi til þess að hún verði komin á gott ról í desember.




