spot_img
HomeFréttirDagskrá körfuboltabúða Gatorade 2017

Dagskrá körfuboltabúða Gatorade 2017

Gatorate körfuboltabúðir í Valshöllinni að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá þriðjudags 6. júní til föstudags 9. júní næstkomandi en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 12 til 18 ára.

 

Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu færa þjálfara sem munu þjálfa í búðirnar. Körfuboltabúðirnar eru á milli 18.00 og 21.00 og verðið er 7.500- krónur.

 

 

Gatorate körfuboltabúðir 2017:

Frá 6. Júní til 9. júní 18.00-21.00
 

12 til 18 ára stelpur og strákar

Verð 7.500 kr

Skráning með T-pósti: [email protected] 

 

Dagskrá æfingabúðanna 2017:

Frá kl: 17.00 – 18.00 – Frjáls tími þar sem leikmenn geta hitt þjálfara og æft það sem þeir vilja. Skráning fer einnig fram fyrsta daginn.

 

18.00 – Stöðvarþjálfun: Stöðvarþjálfunin er aðalþáttur æfingabúðanna. Leikmönnum er skipt upp í sjö hópa eftir aldri og kyni.

 

1. Varnarleikur einstæklinga

Á þessari stöð munu leikmenn fara í varnarleik einstaklings, fótavinnu, varnarrennsli, vörn 1 á 1 o.s.frv. Sævaldur Bjarnason þjálfari mfl.flokk kvenna og yngri flokka hjá Fjölni.

 

2. Varnarleikur 

Á þessari stöð verður farið yfir grundvallaratriði á liðsvarnarleik. Davíð Ásgrímsson þjálfari frá Breiðablik mun vera þjálfari á stöðinni.

 

3. Sóknarleikur:

Á þessari stöð verðu farið yfir hreyfingar án bolta. Sendingar, Jafnvægi á sóknarvelli, hlaup á körfu (e. cut), hindranir o.fl. David Patchell frá Englandi vera þjálfari á stöðinni.

 

4. Fótavinna og sóknarhreyfingar

Á þessari stöð munu leikmenn fara í gegnum fótavinnu og sóknarhreyfingar bæði fyrir bakverði og leikmenn með bakið í körfuna. Oddur Benediktsson þjálfari hjá Stjörnunni munu vera þjálfari á stöðinni.

 

5. Skotstöð

Á þessari stöð verður farið í gegnum skothreyfinguna frá grunni í bland við skemmtilega skotleiki. Austin Magnús Bracey einn allra besti skotmaður landsins mun vera þjálfari á stöðinni. 

 

6. Boltatækni:

Á þessari stöð verður æft knattrak og sendingar með bæði einum bolta og tveimur boltum. Friðrik Þjálfi Stefánsson mun stjórna æfingum á stöðinni.

 

7. Fráköst og Póst æfingar :

Á þessari stöð verður farið í fráköst og æft hryefingar nálagt körfunni . Ragnar Ágúst Nathanaelsson atvinnumaður frá Spáni mun stjórna æfingum á stöðinni.

 

 

19.40- NBA mót: Hér er leikmönnum búðanna skipt upp í NBA West, NBA East og WNBA og síðan er spilað mót þá daga sem búðirnar munu standa yfir.

 

21.00 – Fyrirlestur Stuttur fyrirlestur og æfingunni er síðan slitið í framhaldi af honum. 

 

 

Yfirþjálfari búðanna : Ágúst Björgvinsson hefur verið  í hópi bestu þjálfara landsins undanfarinn áratug og hefur þjálfað meistaraflokk karla og kvenna hjá þremur félögum Hamar, Haukum og Val. 

Ágúst hefur einnig þjálfað ýmis landslið hjá körfuknattleikssambandinu á árunum 2001. Auk þessa hefur Ágúst einnig þjálfað mikið í yngri flokkum undanfarin ár og hefur reynslu af þjálfun allra aldursflokka hjá báðum kynjum. Ágúst hefur mikla reynslu af körfuboltabúðum sem þessum bæði frá Evrópu og Bandaríkjum, en meðal búða sem hann hefur þjálfað í eru Duke University og Five Star Basketball Camp en þær búðir eru mjög virtar og mikils metnar í körfuboltaheiminum í Bandaríkjunum.

 

Myndir frá eldri búðum má finna hér 

 

Það munu fleiri þjálfarar og meistaraflokksleikmenn aðstoða við þjálfun í búðunum. Landsliðsleikmenn kíkja í heimsókn og heilsa uppá leikmenn.

 

Besta körfuboltafólk landsins hefur oft nefnt það að aukaæfingin sé það sem skapi meistarann og í þessum körfuboltabúðum fá framtíðarleikmenn í íslenskum körfubolta kjörið tækifæri til þess að þroska hæfileika sína á sviði einstaklingsæfinga og fá góða leiðsögn frá hæfum þjálfurum.

Fréttir
- Auglýsing -