spot_img
HomeFréttirDagskrá Gatorade búðanna 2025 - Enn nokkur pláss laus

Dagskrá Gatorade búðanna 2025 – Enn nokkur pláss laus

Gatorade körfuboltabúðir í N1 höllinni að Hlíðarenda. Búðirnar í ár eru frá mánudegi 9. júní til fimmtudags 12. júní næstkomandi en þær eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 11 til 18 ára. Spilað er á háar körfur og þeir sem treysta sér í það eru velkomnir.

Þessir krakkar fá hér tækifæri til þess að njóta handleiðslu færra þjálfara sem munu þjálfa í búðunum.

Gatorade körfuboltabúðir 2025:

Frá 9. Júní til 12. júní 17.00-20.30

11 til 18 ára stelpur og strákar

Verð 16.500 kr.

Skráning hefur verið frábær síðust ár og færi komist að en viljað. Því mikilvægt að tryggja sér pláss með að skrá snemma.

Skrá í Garotarde búðir hér

Frekar upplýsingar

[email protected]

Dagskrá æfingabúðanna 2025:

Frá kl: 16.30 – 17.00 Frjáls tími þar sem leikmenn geta hitt þjálfara og æft það sem þeir vilja. Skráning fer einnig fram fyrsta daginn.

17.00 Stöðvaþjálfun: Stöðvaþjálfunin er aðalþáttur æfingabúðanna. Leikmönnum er skipt upp í hópa eftir aldri og kyni. Farið er í sex mismunandi stöðvar á hverjum degi.

Frábæri þjálfarar þjálfa í búðunum í ár eins og undanfarin ár.

1.Styrktarþjálfun

Leikmenn fá að leiðsögn í styrktarþjálfun og meiðslafyrirbyggjandi æfingum undir handleiðslu Páll Arnar Kendeh íþróttafræðingur og styrktarþjálfara.

2. Video stöð

Á þessari stöð verðu farið í myndbandsgreiningu á körfubolta. Með mismunandi reyndum þjálfurum.

3. Sóknarstöð

Þar sem áherslan er æfa knattrak og sendingar með bæði einum bolta og tveimur boltum. Einnig hreyfingar án bolta.

Þjálfarar á þessari stöð John Sarge margreyndur unglinga þjálfari frá Bandaríkjunum, sem er að koma gang gert til að þjálfa í Gatorade búðunum í ár. Verðu einnig með sér námskeið eftir búðirnar 14-15. júní. Danielle Rodriguez einn öflugasti leikmaður íslenska landsliðsins og nú nýr leikmaður hjá Njarðvík sem hefur einnig sannað sig sem frábær þjálfari verður á sóknarstöðinni og Aron Páll Hauksson þjálfari frá Val.

4. Fótavinna, sóknar- og varnarhreyfingar 1 á 1

Á þessari stöð munu leikmenn fara í gegnum fótavinnu og sóknarhreyfingar bæði fyrir bakverði og leikmenn með bakið í körfuna, með 1 á 1 leikjum.

Þjálfarar á stöðinni eru Jamil Abiad einstaklingsþjálfari frá Kanada, sem einkaþjálfari nokkra af bestu leikmönnum landsins. Friðrik Þjálfi Stefánsson þjálfara frá Val mun sjá um stöðina. Friðrik er með skemmtilega YouTube síðu með yfir 230.000 fylgjendum sem má sjá hér og Sigurður Jensson frá Dímon Hvolsvelli.

5. Varnarleikur

Á þessari stöð munu leikmenn fara í varnarleik liðs, einstaklings, fótavinnu, varnarrennsli, vörn 2 á 2 – 3 á 3 o.s.frv.

Þjálfara á stöðinni Kristófer Acox einn besti leikmaður landsins þekktur fyrir sérlega góðan varnaleik. Ólöf Helga Pálsdóttir unglingalandsliðs þjálfari hjá Val. Gunnar Sverrisson þjálfari landsliðs þjálfari frá Haukum.

6. Skotstöð

Á þessari stöð verður farið í gegnum skothreyfinguna frá grunni í bland við skemmtilega skotleiki.

Þjálfarar á stöðinni eru Frank Aron Booker einn allra besti skotmaður Bónus deildarinnar. Hassan Haq þjálfari frá Pakistan og Englandi, sem hefur mikla reynslu af þjálfun í körfuboltabúðum víðsvegar um heim. Sem er að koma gang gert til að þjálfa í Gatorade búðunum. Veigar Elí Grétarsson þjálfara frá breiðablik mun einnig þjálfa á stöðinni.

18:30 – Hlé og nesti

19.45- NBA mót: Hér er leikmönnum búðanna skipt upp í NBA West, NBA East, WNBA og NCAA síðan er spilað mót þá daga sem búðirnar munu standa yfir.

20.20-Stuttur Fyrirlestur og búðum er síðan slitið í framhaldi af honum.

Með fyrirvara um breytingar á dagskrá.

Yfirþjálfari búðanna: Ágúst Björgvinsson hefur verið í hópi færustu þjálfara landsins undanfarna þrjá áratug og hefur þjálfað meistaraflokk karla og kvenna hjá þremur félögum Hamar, Haukum og Val. Ágúst hefur einnig þjálfað ýmis landslið hjá körfuknattleikssambandinu frá árinu 2001. Auk þessa hefur Ágúst einnig þjálfað mikið í yngri flokkum undanfarin ár og hefur reynslu af þjálfun allra aldursflokka hjá báðum kynjum. Ágúst hefur mikla reynslu af körfuboltabúðum sem þessum bæði frá Evrópu og Bandaríkjum, en meðal búða sem hann hefur þjálfað í eru Duke University , Davidson, NC State, Five Star Basketball Camp, Pocano Invitational, Hoop Group Basketball camp en þær búðir eru mjög virtar og mikils metnar í körfuboltaheiminum í Bandaríkjunum.

Fréttir
- Auglýsing -