Daði Lár Jónsson hefur ákveðið að söðla um og mun koma til með að leika með Keflvíkingum það sem eftir lifir mótsins en þetta staðfesti hann í samtali við Karfan.is nú rétt áðan. "Það eru margar ástæður fyrir þessu og löng saga en sú stutta væri sú að Keflavík hentar mér betur sem leikmanni" sagði Daði Lár. Daði fótar þar með í spor föður síns sem átti þátt í einu besta tímabili Keflavíkur, eða þegar liðið var kennt við Hraðlest og hefur hann oft verið nefndur "Herra Keflavík"
"Auðvitað er það erfið ákvörðun að yfirgefa Stjörnuna enda alist þar upp. Ég hef bara góða hluti að segja um klúbbinn en ég tel mig vera á réttum stað núna og vonandi get ég gert gott lið Keflavíkur en betra." sagði Daði Lár enn fremur.
"Pabbi er í raun ástæðan fyrir því að ég fer til Keflavíkur. Ég vil spila hraðan Keflavíkurbolta. Pabbi er mitt átrúnaðargoð og ég tek vel í allan samanburð í þeim efnum. Vonandi fæ ég bara treyju númer 14." sagði Daði að lokum.
Daði hefur í vetur spilað 7 leiki fyrir Stjörnuna og skorað í þeim 3.3 stig, tekið 3 fráköst og sent 1 stoðsendingu að meðaltali í leik