Daði Lár Jónsson, leikmaður Keflavíkur, verður ekki með sínum mönnum í kvöld í 1. leik undanúrslitanna gegn KR. Daði meiddist á fæti í þriðja leik liðsins í 8 liða úrslitunum gegn Tindastól, eftir að hafa orðið undir erlendum leikmanni Tindastóls, Antonio Hester. Fyrstu fréttir af meiðslunum voru þær að ekki væri um brot að ræða og beðið væri með að sjá hvort Daði yrði klár aftur þetta tímabilið. Í samtali við Karfan.is sagði Daði nú að væri um að ræða beinmar í ökklanum og yrði hann ekki meira með þetta tímabilið. Ljóst að um skarð er að ræða í leikmannahóp Keflavíkur, en í 25 leikjum spiluðum fyrir Keflavík í vetur hefur Daði verið að spila að meðaltali í kringum 16 mínútur.




